Þrír menn á þrítugs- og fertugsaldri eru grunaðir um að hafa táldregið fjórtán ára stúlkur á samfélagsmiðlum. Mæður stúlknanna, sem vilja ekki láta nafn síns getið dætra sinna vegna, segjast vanmáttugar gagnvart heilum heimi af hættum sem leynast á samfélagsmiðlum.Á föstudagskvöld stöðvaði lögreglan bíl í hefðbundnu umferðareftirliti. Í bílnum voru þrír erlendir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri og tvær fjórtán ára stúlkur. Samsetning hópsins og ástand stúlknanna vakti grunsemdir lögreglu. Mennirnir voru handteknir og sæta nú rannsókn fyrir brot á barnaverndarlögum.Mæður tveggja fjórtán ára stúlkna þakka fyrir að lögregla hafi stöðvað bíl sem dætur þeirra voru farþegar í fyrir tilviljun á föstudagskvöld. Þrír menn á þrítugs- og fertugsaldri, sem voru með þeim í bílnum, eru grunaðir um að