„Það virðist vera óumflýjanlegt fyrir mig að detta niður í mesta myrkrinu. Í vetur ákvað ég að spyrna við, breyta vörn í sókn og rómantísera myrkrið,“ segir myndlistarkonan Ragnhildur Jóhanns, sem hefur vakið athygli fyrir einstök listaverk sín og eru blómin vinsælt viðfangsefni hjá henni. Blaðamaður ræddi við hana um listina, lífið og andlega heilsu.