Ungur frumkvöðull frá Sauðárkróki stofnaði nýlega fyrirtæki sem býður upp á stafræn SIM-kort fyrir ferðalanga. Hugmyndin kom eftir viðskiptaferðalag til Kína en þjónustan, sem ber heitið Ferðapakkinn, er ekki fyrsta fyrirtækið úr smiðju frumkvöðulsins.