Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ekki nóg að það sé rjómablíða

Óljóst er hvort aðstæður leyfi siglingu á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyjahafnar á meðan utanvegahlaupinu The Puffin Run stendur. Hlaupið verður haldið í níunda skipti 2. maí.Katrín Laufey Rúnarsdóttir, skipuleggjandi hlaupsins, segir þátttakendur ekki þurfa að hafa áhyggjur.„Við tökum bara einn dag í einu og ef þessi vika er góð veðurlega séð er hægt að taka stöðuna út frá því.“ Enn eru 11 dagar í hlaupið og segir Katrín að erfitt sé að gera ráð fyrir veðuraðstæðum svo langt fram í tímann en þau séu viðbúin öllu.Dæla þarf sandi úr Landeyjarhöfn svo hægt sé að sigla þaðan og það er aðeins mögulegt þegar vel viðrar. Veðurspáin lítur vel út en ekki er nóg að það sé rjómablíða að sögn Katrínar Laufeyjar. Ölduhæð og aðstæður í eru nauðsynlegar svo Herjólfur komist inn í Landeyjahöfn.Höfni
Ekki nóg að það sé rjómablíða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta