JD Vance. Mynd úr safni.EPA / WILL OLIVER / POOLJD Vance varaforseti Bandaríkjanna hefur frestað för sinni til Pakistan, þar sem hann hugðist leiða friðarviðræðurnar af hálfu Bandaríkjanna, og ætlar að sitja fundi í Washington í staðinn. Þar ræðir hann við embættismenn um næstu skref, eftir því sem bandarískir fjölmiðlar hafa eftir heimildarmönnum.Meðal þeirra sem Vance hittir eru Pete Hegseth varnarmálaráðherra og Marco Rucio utanríkisráðherra. Íranar hafa enn ekki svarað hvort þeir mæti til viðræðnanna og því eru þær algjörlega í lausu lofti.