Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Mér líður eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“

Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir það ekki koma sér á óvart að Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar opinberi skoðun sína á launahækkun hennar sem stjórn VR samþykkti fyrir helgi. Hún segir Sólveigu hafa sterkar skoðanir á mörgu sem varði bæði VR og hana sjálfa.Fyrir helgi samþykkti stjórn VR að hækka laun Höllu um 12 prósent. Sólveig Anna hefur gagnrýnt launahækkunina harðlega sem hún segir skjóta skökku við lög Alþýðusambands Íslands. „ÞETTA ER ALLT Á EINN VEG“ „Ég er ítrekað spurð um hvað þetta sé „á milli ykkar“, en staðreyndin er sú að það er nákvæmlega ekkert á milli okkar. Þetta er allt á einn veg,“ segir Halla í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í dag.Þar segist hún ekki hafa tölu á fjölmiðlaviðtölum og Facebook-færslum Sólveigar Önnu sem fjallað hafa um hana.„H
„Mér líður eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta