Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögregla kölluð út vegna manns sem synti í Ölfusá

Lögreglan á Suðurlandi brást í dag við tilkynningu um mann sem synti í Ölfusá við Ölfusárbrúna nærri Selfossi.Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir að maðurinn hafi ekki verið lengi á sundi og hafi skilað sér upp á bakka árinnar stuttu eftir að lögregla mætti á vettvang. Lögregla ræddi við sundmanninn að sundinu loknu.„Þetta er hættulegt og bagalegt. Þetta er mjög straumhörð á og hún skilar illa því sem hún tekur,“ segir Íris Edda en lögreglan mælir alls ekki með því að lagst sé til sunds í ánni.Ekki reyndist þörf á að kalla sjúkrabíl eða annað viðbragð á vettvang.Sjá má manninn á sundi í stuttu myndbandi sem sent var fréttastofu hér fyrir neðan.Lögreglan á Suðurlandi brást í dag við tilkynningu um sundmann í Ölfusá við Ölfusárbrúnna nærri Selfossi. Mannin
Lögregla kölluð út vegna manns sem synti í Ölfusá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta