Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrirskipar eftirlit með ferðamannastöðum eftir skotárás

Kanadískur ferðamaður var drepinn og 13 aðrir særðust þegar maður hóf skothríð við Teotihuacan-pýramídana í Mexíkó í gærkvöld. Pýramídarnir eru í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá Mexíkóborg. Skotárásin var þaulskipulögð og Claudia Sheinbaum forseti Mexíkó segir nauðsynlegt að herða skotvopnaeftirlit á ferðamannastöðum.Skotárásin átti sér stað við pýramída tunglsins, 45 metra hátt mannvirki sem hægt er að fara upp á í bröttum stiga. Árásarmaðurinn var 27 ára og frá Mexíkóborg. Hann svipti sig lífi þegar hermenn nálguðust hann. Meðal þeirra særðu voru kanadísk kona, mæðgin frá Kólumbíu, tveir Bandaríkjamenn og maður frá Brasilíu. ÞAULSKIPULÖGÐ ÁRÁS Ríkissaksóknari Mexíkó upplýsti í dag að maðurinn hefði komið reglulega á staðinn og gist á hótelum í nágrenninu. Þar hafi hann ski
Fyrirskipar eftirlit með ferðamannastöðum eftir skotárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta