Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Pakistanar segja að vopnahléi ljúki í kvöld

Öryggisráðstafanir vegna friðarviðræðna í Islamabad í Pakistan.EPA / SOHAIL SHAHZADVopnahléinu í Íran lýkur í kvöld, ekki annað kvöld. Þetta segir Attaullah Tarar upplýsingamálaráðherra Pakistan á X. Þetta er í samræmi við það sem búist var við þangað til Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að því myndi ljúka á morgun.Þá sagði Tarar að Íranar ættu enn eftir að svara því formlega hvort þeir kæmu til viðræðnanna í Pakistan. Mikilvægt væri að fá svar áður en vopnahléinu lýkur, sem er kl. 23:50 að íslenskum tíma.
Pakistanar segja að vopnahléi ljúki í kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta