„Ég held að upp séu komnir tímar þar sem þörf verður á meiri stjórnmálum og minni pólitík,“ voru skilaboð Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur í hennar síðustu þingræðu.Þórdís Kolbrún hefur verið skipuð sendiherra frá og með 1. ágúst og tilkynnti hún í gær að hún ætlaði að segja af sér þingmennsku. Hún kvaddi sér hljóðs undir liðnum störf þingsins og notaði tækifærið til að kveðja kollega og starfsfólk Alþingis.Þingmenn þurfa að stunda meiri stjórnmál og minni pólitík sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir í sinni síðustu ræðu á Alþingi.Alþjóðmálin voru þingmanninum fráfarandi ofarlega í huga og sagði víðsjáarverða tíma gera miklar kröfur til þeirra sem gegna ábyrgðarstöðum í samfélaginu. „Við búum við það hér að hafa mikið samfélagslegt traust. Það hefur verið mér tíðrætt en Alexa