Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gæsluvarðhald framlengt vegna smygls með Dettifossi

Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir þremur mönnum sem grunaðir eru um aðkomu að smygli á rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með flutningaskipinu Dettifossi.Þetta staðfestir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, við fréttastofu.Mennirnir voru handteknir í síðustu viku og úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald. Gæsluvarðhald yfir einum hefur verið framlengt á grundvelli rannsóknarhagsmuna um tvær vikur, en um eina viku yfir hinum tveimur sem eru í haldi.Sex voru handteknir en þremur sleppt stuttu síðar. Tveir þeirra sem eru í haldi eru starfsmenn Eimskips.
Gæsluvarðhald framlengt vegna smygls með Dettifossi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta