Grindavík og Hveragerði teljast í mesta hættuflokki í nýbirtu mati Veðurstofu Íslands á hraunavá á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu. Hættumatinu er ætlað að kortleggja hvar hættur geta skapast í ljósi gossögu svæðisins.Efsta hættustigið nær til um tíu prósenta svæða þar sem samanlögð hætta vegna gosupptaka og hraunflæðis er mest. Grindavík er eina þéttbýlið sem er útsett bæði fyrir mjög miklum líkum á gosupptökum og hraunflæði. Hluti Hafnarfjarðar er einnig berskjaldaður, Vellirnir og iðnaðarsvæði í Kapelluhrauni eru á svæðum þar sem líkurnar eru metnar töluverðar til miklar.Í Garðabæ teljast Kauptún og hlutar Urriðakotsholts vera á svæðum með nokkrar líkur á hraunflæði. Í Kópavogi á það við um óbyggt uppland í Bláfjöllum og á Sandskeiði sem er mjög berskjaldað. Þá eru Norðlingaholt og B