Grafarholt, Mosfellsbær, Úlfarsárdalur, Norðlingaholt, Breiðholt, Vatnsendahverfið, Skarðshlíð og Urriðaholt eru allt hverfi sem liggja á hugsanlegum upptökum eldgosa, samkvæmt ítarlegu hættumati Veðurstofu Íslands um eldgosavá á Reykjanesskaga til langs tíma. Enn fleiri hverfi eru í hugsanlegum farvegi hraunrennslis, allt eftir því hvar gysi. Margfalt meiri líkur eru þó á því að gosupptök verði langt ofan byggða og hraun renni aðrar...