Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Boðar ný viðmið við ákvörðun lyfjaverðs

Miðað verður við meðalverð á Norðurlöndum við ákvörðun á lyfjaverði hér á landi í stað þess að miða við lægsta verð.Þetta tilkynnti Alma Möller heilbrigðisráðherra í ávarpi sínu á afmælisráðstefnu Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi. Ráðstefnan fór fram á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Hvað ræður lyfjamálum – vísindin, peningarnir eða pólitíkin?Alma segir að með þessu sé verið að móta skýra forgangsröðun við innleiðingu nýrra lyfja á markað. Miðað hefur verið við lægsta verð frá því í kringum efnahagshrun. Meðal annars var vakin athygli á því á síðasta ári að hætt væri við að krabbameinslækningar hér á landi dragist aftur úr á Norðurlöndum ef nýjustu lyf eru ekki innleidd.„Ef við setjum verðið of lágt getur það dregið úr hvata fyrirtækja til að koma með lyf hin
Boðar ný viðmið við ákvörðun lyfjaverðs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta