Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

120 íslenskir listamenn krefjast sniðgöngu Eurovision

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður haldin í sjötugasta skipti í maí og má búast við því að milljónir manna um allan heim muni fylgjast með. Herferðin No Music for Genocide hefur því birt opið bréf þar sem kallað er eftir sniðgöngu keppninnar vegna þeirrar ákvörðunar að leyfa Ísrael að taka þátt þriðja árið í röð þrátt fyrir hernað þeirra á Gaza.Bréfið var upphaflega undirritað af fjölmörgum þekktum listamönnum og á þeim lista mátti finna Ólaf Arnalds, Sigur Rós, Of Monsters and Men sem og Kneecap, Brian Eno, Massive Attack, Macklemore og fyrrum Eurovision-sigurvegarana Emmelie de Forest og Charlie McGettigan.Síðan bréfið var birt hafa hátt í þúsundir listamanna bætt nafni sínu við listann, þar af um 120 Íslendingar. Þar má nefna Benna Hemm Hemm, BlazRoca, Braga Valdimar Skúlason
120 íslenskir listamenn krefjast sniðgöngu Eurovision

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta