Tilkynnt var í gær um forstjóraskipti í Apple, nokkuð sem hefur ekki gerst oft í 50 ára sögu fyrirtækisins. Sérfræðingar telja að með nýjum forstjóra verði minni áhersla lögð á stækkun fyrirtækisins, sem hefur verið mikil undir stjórn núverandi forstjóra, og meiri áhersla á vöruþróun sem hafi setið nokkuð á hakanum.Tim Cook núverandi forstjóri, sem er 65 ára, hefur gegnt forstjórastarfinu í 15 ár. Þá tók hann við af stofnandanum Steve Jobs, sem var þá orðinn veikur af krabbameini og lést skömmu síðar. Starfslok hans komu ekki á óvart en tæknibransinn var lengi búinn að velta fyrir sér hver myndi taka við. Í gær var því svarað og niðurstaðan var ekki sérstaklega óvænt. Í haust tekur John Ternus við. Hann hefur starfað í 25 ár hjá fyrirtækinu og er nú yfir vélbúnaðarþróun fyrirtækisins. Samh