Um fátt er meira deilt þessa dagana en námsmat í grunnskólum - og þá sérstaklega einkunnaskalann - sem nú stendur til að breyta úr bókstöfum aftur í tölustafi. Rætt er um fyrirkomulag einkunnagjafar í Þetta helst í dag.Prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands telur of mikið gert úr mikilvægi einkunnakvarðans í grunnskóla. Innleiðing á einkunnagjöf í bókstöfum hafi ekki verið góð og kennarar ekki fengið nægilegan stuðning og fræðslu um breytingarnar.Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, boðaði breytingar á einkunnakerfi í grunnskólum á þingi Kennarasambands Íslands í síðustu viku. Ráðherra sagði í ræðu sem hún hélt á þinginu að hún teldi eðlilegt að nota tölustafi í einkunnagjöf, eins og tíðkast í framhaldsskólum og háskólum, en ekki bókstafi eða önnur form sem gæti verið erfitt