Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Húsnæðisverð fer lækkandi

Raunverð íbúða hefur lækkað um 2,63 prósent síðustu tólf mánuði, þegar búið er að leiðrétta íbúðaverð með hliðsjón af verðbólgu. Verðhækkanir íbúða hafa ekki haldið í við verðbólgu síðan á síðasta ári. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun birti í dag vísitölu íbúðaverðs í mars. Íbúðaverð hækkaði um 0,62 prósent milli febrúar og mars og er vísitalan 0,88 prósentum hærri en hún var í september. Þar á þó eftir að taka tillit til verðbólgu.Fjölbýli á landsbyggðinni hefur hækkað mest í krónum talið, um 3,62 prósent, á síðustu tólf mánuðum. Næstmest er hækkunin á sérbýli á höfuðborgarsvæðinu, 3,43 prósent. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 2,20 prósent en minnst er hækkunin á sérbýli á landsbyggðinni, 1,58 prósent.
Húsnæðisverð fer lækkandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta