Undirverktakar sem þáðu á annað hundrað milljónir króna í greiðslur frá málningarverktaka gátu litla grein gert fyrir því hvað hefði orðið um peninginn sem þeir fengu, hverjir hefðu unnið fyrir þá eða hvaða kostnað þeir hefðu borið af verkum sínum.Peningarnir sem voru lagðir inn á reikninga þeirra fyrir unna málningarvinnu hurfu jafnóðum út af þeim, teknir út í reiðufé. Samtals námu þeir 133 milljónum, þar af 32 milljónum sem voru uppgefnar sem virðisaukaskattur sem skilaði sér aldrei í ríkissjóð.Mennirnir þrír voru allir í virkri neyslu og litlar upplýsingar að hafa um verkin sem þeir áttu að hafa unnið og samskipti við verkkaupa. Ríkisskattstjóri taldi reyndar að vímuefnaneysla mannanna væri svo mikil að þeir hefðu ekki burði til að stunda sjálfstæða atvinnustarfsemi upp á tugi milljóna