Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ástin sem eftir er hlýtur verðlaun í Rómönsku-Ameríku

Kvikmyndin Ástin sem eftir er í leikstjórn Hlyns Pálmasonar hlaut Latin American Critic’s Award í flokki evrópskra mynda sem veitt voru við alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Guadalajara í Mexíkó. 35 gagnrýnendur frá 13 löndum í Rómönsku-Ameríku stóðu fyrir valinu. Kvikmyndamiðstöð Íslands útnefndi Ástina sem eftir er fyrir hönd Íslands.Sverrir Guðnason, sem fer með eitt aðalhlutverka, tók við verðlaununum í Mexíkó fyrir hönd Hlyns. „Það hefur mikla þýðingu fyrir okkur að myndin fái þessa viðurkenningu og tækifæri til að ná til nýrra áhorfenda um alla Rómönsku Ameríku,“ sagði hann.Sverrir Guðnason á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Guadalajara í Mexíkó að veita verðlaununum viðtöku.Aðsend
Ástin sem eftir er hlýtur verðlaun í Rómönsku-Ameríku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta