Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, hefur hafið störf í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Hún verður sérfræðingur þar eftir að hafa gegnt sömu stöðu í dómsmálaráðuneytinu eftir að hún lét af embætti ríkislögreglustjóra í nóvember. Vísir greindi frá vistaskiptum Sigríðar Bjarkar í frétt í dag og vísaði þar til skráningar starfsmanna á síðum viðkomandi ráðuneyta.Sigríður Björk hætti sem ríkislögreglustjóri eftir að í ljós kom að embættið hafði greitt ráðgjafarfyrirtæki 160 milljónir króna á fimm árum. Það varð til þess að deilt var á ríkislögreglustjóra og fjármálastjórn embættisins.Sigríður Björk skrifaði færslu á Facebook-síðu sína eftir að fréttin var birt. Hún vísar þar til þess að hún óskaði eftir flutningi úr embætti ríkislögreglustjóra í starf sérfræðings í d