Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, kynnti í dag kosningaáherslur flokksins ásamt öðrum frambjóðendum í efstu sætum. Björg segir Viðreisn ætla að búa til borg sem börn vilji búa í.„Í dag er Reykjavík biðlistaborg og það er víða pottur brotinn í skólabyggingum, íþróttamannvirkjum og öðru,“ segir hún.„Við leggjum áherslu á það að peningarnir sem koma inn sem tekjur í borgarsjóð fari eins einfalda leið aftur og þeir geta aftur út í hverfin. Þetta þýðir að við ætlum að taka til í stjórnsýslunni, afflækja og afrugla Reykjavík, koma peningunum hraðar aftur út í grunnþjónustuna. “ VILJA VERA Í FORYSTU Í SKÓLAMÁLUM Ásamt þessu styðji Viðreisn meðal annars lengingu fæðingarorlofs, Borgarlínu, núverandi samgöngusáttmála og vilji einfalda reglur og leyfisveitingar. Þá segir Björg að Reykjavík