Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Einn handtekinn og annar á sjúkrahús eftir lögregluaðgerðir

Lögreglan á Akureyri naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra í gærkvöldi þegar hún hafði afskipti af ágreiningi tveggja manna í Gránufélagsgötu á Akureyri. Töluvert umfang fylgdi aðgerðinni en að minnsta kosti fimm lögreglubílar og einn sjúkrabíll tóku þátt.Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Akureyri lék grunur á líkamsárás og heimilisofbeldi.Gerandinn hafi neitað að koma út og var talinn vopnaður og þess vegna var sérsveitin kölluð til. Hann var handtekinn og færður í fangaklefa en sá slasaði hafi verið fluttur á sjúkrahús með minniháttar meiðsl.Rannsókn málsins stendur yfir og ekki er búið að yfirheyra þann grunaða.
Einn handtekinn og annar á sjúkrahús eftir lögregluaðgerðir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta