Forseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna segir hugsanabreytingu nauðsynlega til að taka á kynjamisrétti innan fótboltans.Undanfarnar tvær helgar hafa ungir knattspyrnukappar, á aldrinum 4-9 ára, keppt á TM-mótinu í fótbolta, á vegum Stjörnunnar.Á opinberri upplýsingasíðu þess birtust færslur þar sem börnunum var þakkað fyrir þátttökuna.Strákum í 6. flokki var þakkað fyrir komuna með myndskeiði af glæsilegum tilþrifum en stelpum í sama flokki var þökkuð þátttakan með mynd af bangsa.Á sunnudag, þegar yngstu knattspyrnukapparnir höfðu att kappi, var þakkað fyrir helgina með löngu myndskeiði af tilþrifum stráka.Engin stelpa sést í myndbandinu.Stjarnan baðst afsökunar í gær og sagði það mistök að engin stelpa var í myndböndunum. Færslurnar og myndböndin hafa verið fjarlægð af síðunni. SEGIR