Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Enn er enginn fulltrúi Íran farinn til friðarviðræðna – vopnahlé rennur út annað kvöld

Engin írönsk sendinefnd hefur lagt upp í ferð til Pakistan í friðarviðræður við Bandaríkjamenn. Íranska ríkissjónvarpið hefur þetta eftir ónafngreindum embættismanni. Hann segir þátttöku Írana fara eftir breytingum á hegðun og afstöðu Bandaríkjamanna. New York Times greinir þó frá því að Íranar undirbúi að senda fólk til Pakistan til viðræðna.Bandarísk sendinefnd kom til Islamabad höfuðborgar Pakistan í gær og er JD Vance varaforseti væntanlegur þangað í dag. Á meðan er ekki að sjá sáttavilja í opinberum ummælum leiðtoga. Þingforseti Írans sagði á X að Íranar væru að undirbúa ný tromp til að sýna á vígvellinum og að hann myndi ekki sætta sig við samningaviðræður undir hótunum. Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafnaði því að hann væri undir þrýstingi að ná samkomulagi eins og Íranar vilja
Enn er enginn fulltrúi Íran farinn til friðarviðræðna – vopnahlé rennur út annað kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta