Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Efling vill bremsu á leiguverð og verðbólgu

Stjórn Eflingar hefur sent tveimur ráðherrum og velferðarnefnd Alþingis tillögur sínar um að tekin verði upp leigubremsa á húsnæðismarkaði. Forysta verkalýðsfélagsins telur að með upptöku slíkrar leigubremsu megi draga hratt úr verðbólgu, verðbólguvæntingum og vaxtastigi. Tillögurnar voru sendar á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. Efling vill að bann verði lagt við mánaðarlegum hækkunum á leigu og að árlegar hækkanir verði bundnar við vísitölu neysluverðs án húsnæðisleiðar. Félagið vill líka setja skorður við ákvörðun um markaðsleigu og efla eftirlit.„Að mati Eflingar myndi innleiðing leigubremsu vera bæði skjótvirk aðgerð gegn verðbólgu og mikilvæg kjarabót fyrir leigjendur, sérstaklega ungt og tekjulægra fólk. Félagið skora
Efling vill bremsu á leiguverð og verðbólgu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta