Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Brenndi gömul jakkaföt á afmælinu

Fatabrenna átti sér stað á Suðurlandi í gær. Þar var á ferð Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður og fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins. Hann átti 64 ára afmæli og fagnaði því þeim merka aldri sem Bítlarnir sungu um á sínum tíma.„Á þeirra tíma var sá aldur einhver endalok. Nú um stundir er heill kafli framundan,“ skrifar Sigurður Ingi á Facebook. Sigurður Ingi segist hafa ákveðið að kveðja fortíðina með táknrænum hætti og bjóða nýja tíma velkomna. „Eldurinn getur verið hreinsunareldur og upphaf. Brenndi þess vegna gömul jakkaföt og náttúran tók vel undir með fallegum norðurljósum.“Fatabrenna Sigurðar Inga.Facebook / Sigurður Ingi JóhannssonFacebook / Sigurður Ingi Jóhannsson
Brenndi gömul jakkaföt á afmælinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta