Hin fjölhæfa Vigdís Hafliðadóttir ber ýmsa hatta þar sem hún er bæði söngkona, leikkona, grínisti og handritshöfundur svo fátt eitt sé nefnt. Hún hefur fjölmörg járn í eldinum en hún leikur nú í sýningunni Ekki hugmynd í Borgarleikhúsinu og fyrir helgi var frumsýndur fyrsti þátturinn af Tuttugu og eitthvað á RÚV. Einnig verður hún með tónleika á miðvikudaginn í Salnum í Kópavogi þar sem hún syngur vísur í þýðingu Þórarins Eldjárns.Vigdís nam heimspeki við Háskóla Íslands og hefur til dæmis leikið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, áramótaskaupum og nú síðast í Tuttugu og eitthvað þar sem hún er einn höfunda. Hún hefur einnig notið mikilla vinsælda sem kynnir skemmtiþáttarins Kappsmáls á RÚV og með hljómsveitinni FLOTT sem stofnuð var árið 2020 og hefur slegið í gegn. Vigdís var föstudagsgestur M