Kvöldævintýri tók óvænta stefnu þegar Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ásamt öðrum lenti í sjónum fyrir utan Kjalarnes. Þá höfðu þeir róið út á tveimur kajökum að veiða en lent í vandræðum með pedalspaðana og tókst að velta báðum bátunum. Þeim var bjargað úr sjónum eftir rúman hálftíma og þakkar Jón bæði björgunarsveitinni og bráðamóttökunni fyrir góð viðbrögð.