Mjög eindregin neikvæð viðbrögð eru meðal almennings gagnvart fólki sem hefur afplánað fangelsisdóm.„Fólk vill halda fjarlægð frá þeim. Það er með margvíslega útilokandi afstöðu, vill ekki að einstaklingar verði fullgildir meðlimir í samfélaginu, vill útiloka þá frá alls konar störfum. Það tjáir líka ýmsar neikvæðar tilfinningar og hefur alls konar fordóma um karakter viðkomandi.“Þetta segir Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði, sem kynnir síðar í dag niðurstöður könnunar um fordóma gagnvart fólki sem hefur brotið af sér.Afstaða fólks til fyrrverandi fanga hefur ekki verið skoðuð í stórri rannsókn á Íslandi áður. Könnunin var gerð í fyrra og fjármögnuð af Geðhjálp. NEIKVÆÐAR STAÐALMYNDIR HAFA ÁHRIF Á AÐLÖGUN Neikvæðar staðalmyndir og útilokun geta haft afdrifaríkar afleiðingar f