Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var annar mannanna sem lentu í sjónum úti fyrir Kjalarnesi í gær. Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni.Mennirnir fóru til veiða á kajökum. Þá vildi ekki betur til en svo að þeir lentu í vandræðum með pedalspaðana á öðrum kajakinum og lauk því þannig að báðum kajökum hvolfdi.„Eftir smá svaml, ca 30 mín,í sjónum og uppi á kili annars kajaksins þangað til 2 björgunarsveitarmenn komu á sæköttum okkur til bjargar,“ skrifar Jón Pétur á Facebook-síðu sinni.Hann segir björgunarsveitarmenn hafa sýnt af sér mikla fagmennsku og heitir því að styrkja björgunarsveitina með öllum ráðum.Svamlið í köldum sjónum hafði þó sín áhrif.„Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir, mældur líkamshiti 32 gráður. En með öruggum handbrögðum tók það ca 30 mínútur