Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Svíar segja Rússa falsa hagtölur

Leyniþjónusta sænska hersins segir að rússnesk yfirvöld hagræði opinberum hagtölum til að láta efnahag sinn líta út fyrir að vera í betri málum en raunin sé. Svíarnir telja að verðbólga sé meiri í Rússlandi en opinberar tölur gefa til kynna og að hallinn á ríkissjóði sé meiri en Rússar viðurkenna. „Þrátt fyrir að nýleg verðhækkun á olíu hafi aukið tekjur Rússa þyrfti verðið að vera yfir 100 dollurum á hverja fötu í meira en ár til að laga fjárlagahalla Rússlands,“ sagði leyniþjónusta sænska hersins í yfirlýsingu. Thomas Nilson, yfirmaður hennar, sagði að staðan breytti ekki vígstöðu Rússa til skamms tíma þar sem Rússar væru staðráðnir í að halda áfram stríðinu í Úkraínu og halda uppi fjölþátta ógnum gegn aðildarríkjum Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins.„Það er pólitísk ákvörðun e
Svíar segja Rússa falsa hagtölur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta