Víðáttumikið háþrýstisvæði hefur hreiðrað um sig yfir landinu með hæðamiðju sem þokast rétt suður af landinu með kvöldinu. Veðurstofan gerir því ráð fyrir að það verði yfirleitt fremur hægar suðlægar eða breytilegar áttir og milt veður ríkjandi víða um land vel inn í vikuna.