Hægur vindur verður víðast hvar um landið í dag með sex til átján stiga hita. Það blæs þó norðvestantil og á Tröllaskaga eftir hádegi þar sem útlit er fyrir tíu til átján metra á sekúndu.Veðurspáin er svohljóðandi:Fremur hæg breytileg átt, en suðvestan 10-18 m/s norðvestantil og á Tröllaskaga eftir hádegi. Yfirleitt hægari inn til landsins og sunnan heiða. Víða bjartviðri, en þykknar upp vestast á landinu og líkur á þokulofti þar. Bætir heldur í vind norðvestast á morgun, en lægir annað kvöld. Hiti 6 til 18 stig yfir daginn, mildast suðaustantil, en nálægt frostmarki í nótt, einkum inn til landsins.