Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Nýja daglýsingin orðin virk í hluta Hvalfjarðarganga

Kveikt hefur verið á hluta nýrrar daglýsingar við suðurenda Hvalfjarðarganga, þar sem hámarkshraði hefur verið lækkaður úr 70 kílómetrum á klukkustund niður í 50 á hálfs kílómetra kafla.Kveikt hefur verið á hluta nýrrar daglýsingar við suðurenda Hvalfjarðarganga.RÚVÞað er gert vegna skertrar lýsingar í gangamunnanum að því er FÍB-fréttir greina frá. Göngin verða lokuð aðfaranætur virkra daga vegna framkvæmdanna sem hófust fyrir rúmri viku og er ætlað að standa til 29. maí.Opið verður fyrir umferð yfir daginn og aðfaranætur laugardags og sunnudags. Verktakafyrirtækið Rafmenn annast verkið og hefur þegar tekið niður á fimmta hundrað lampa og sett upp 56 nýja í staðinn og dregið í 2.800 metra af nýjum strengjum.
Nýja daglýsingin orðin virk í hluta Hvalfjarðarganga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta