Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kajakræðurum bjargað köldum en ómeiddum úr sjónum

Björgunarsveitarmenn björguðu kajakræðurum úr sjónum við Reykjavík.RÚV / Magnús Hlynur HreiðarssonBjörgunarsveitarmenn komu í gær tveimur mönnum til bjargar sem veltu kajak í Grafarvogi. Þeir voru fluttir á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar, kaldir en ómeiddir, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglunni barst tilkynning um að einhver væri að skríða inn um glugga í heimahúsi í vesturhluta Reykjavíkur en það reyndist eiga sér eðlilegar skýringar. Lögreglumenn báðu húsráðanda í úthverfi að hafa aðeins lægra, höfðu afskipti af ökumönnum undir áhrifum og sektuðu tvo sem óku of hratt í Vesturborginni.
Kajakræðurum bjargað köldum en ómeiddum úr sjónum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta