Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Elsku mamma“ — Karl konungur minnist móður sinnar þegar 100 ár eru liðin frá fæðingu hennar

Karl Bretakonungur minnist Elísabetar II móður sinnar í dag, þegar hún hefði orðið 100 ára. Á sama tíma verður kynnt lokaáætlun minnismerkis um drottninguna, þjóðhöfðingjann sem lengst sat að völdum. Elísabet lést 96 ára að aldri í september 2022 eftir sjötíu ára valdatíð. „Elsku mamma,“ segir Karl í þegar uppteknu ávarpi þar sem hann kveður móður sína ætíð hafa verið stefnuföst og fullkomlega trú þjóðinni sem hún þjónaði. Vályndi veraldarinnar nú um stundir hefði valdið Elísabetu hugarangri að mati Karls sem kveðst leita huggunar í þeirri trú hennar að manngæskan hafi alltaf betur og að nýir bjartir dagar séu við sjóndeildarhringinn. „Við getum öll lagt okkar lóð á vogarskálarnar við að gera heiminn aðeins betri í dag en í gær, eins og 14 ára gömul Elísabet sagði í sínu fyrsta opinbera áv
„Elsku mamma“ — Karl konungur minnist móður sinnar þegar 100 ár eru liðin frá fæðingu hennar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta