Þau Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, Halldór Halldórsson, forstjóri Kalkþörungafélagsins, Gréta María Grétarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís, og Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vinstri grænna, voru gestir í Silfrinu í kvöld þar sem þau ræddu stöðu sjávarútvegsins á Íslandi. Var það í kjölfar umfjöllunar danska fjölmiðilsins Berlingske um atvinnugreinina hérlendis.Í grein Berlingske er máluð svört mynd af sjávarútveginum og hann sagður byggjast á fiski, ótta, græðgi og pólitískum áhrifum.Gestir í Silfrinu ræddu íslenska sjávarútveginn í kjölfar umfjöllunar danska fjölmiðilsins Berlingske sem málar svarta mynd af atvinnugreininni. UPPLIFIR GRÍÐARLEG TENGSL Á MILLI STJÓRNMÁLA OG PENINGAAFLANNA Í LANDINU „Mér hefur alltaf fundist það hljóta að vera umhugsunare