Amnesty International segir heiminn standa á barmi nýs og hættulegs tímabils þar sem valdamikil ríki, fyrirtæki og hreyfingar sem eru andsnúin réttindum ráðist á alþjóðasamstarf, alþjóðalög og mannréttindi.Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu samtakanna. Þau vara við þessari þróun og segja nauðsynlegt að ríki, alþjóðastofnanir og borgaralegt samfélag hafni undanlátssemi í stjórnmálum til að komast hjá ófriði, líkt og gerðist í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar.Í skýrslunni er haft eftir Agnès Callamard, aðalframkvæmdastjóra Amnesty International, að vaxandi átök í Miðausturlöndum séu afleiðing þessarar þróunar í átt að lögleysu.„Í kjölfar fyrstu ólögmætu árása Bandaríkjanna og Ísraels, sem brutu gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna og leiddu til handahófskenndra hefndaraðgerða Írans, hafa átöki