Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tim Cook hættir í haust sem forstjóri Apple og verður stjórnarformaður

Fimmtán ára forstjóratíð Tim Cook fyrir tæknirisann Apple lýkur í september, en hann er ekki á förum því hann sest þá í stól stjórnarformanns fyrirtækisins. John Ternus tekur við forstjórastarfinu, en hann er einn af deildarstjórum Apple. Tim Cook, sem er 65 ára, hefur starfað fyrir Apple frá því árið 1998 og hefur verið einn af lykilmönnum í velgengni þess undanfarna áratugi. Virði Apple hefur margfaldast frá því Cook tók við forstjórastarfinu af Steve Jobs, sem lét af störfum vegna veikinda 2011, skömmu áður en hann lést. Tim Cook segir í yfirlýsingu að mestu forréttindi lífsins séu að hafa verið treyst fyrir að stýra jafn einstöku fyrirtæki, sem varð fimmtugt núna í apríl.
Tim Cook hættir í haust sem forstjóri Apple og verður stjórnarformaður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta