Það bætir í vanda Kristnesspítala í Eyjafirði. Loka þurfti hluta húsnæðis spítalans vegna myglu í mars og nú hefur húsnæði starfsmanna verið metið óheilnæmt. Ríkið á um 20 íbúðir á svæðinu og búið er í 11 þeirra. Starfsmönnum hefur verið ráðlagt að flytja út sem fyrst.Eftir að mygla greindist í spítalanum sjálfum var ráðist í frekari greiningar á húsnæði í eigu ríkisins og umsjá Sjúkrahússins á Akureyri:„Við létum meta ástand eignanna, íbúðanna ellefu, fengum verkfræðistofu í það. Verkfræðistofan mat húsnæðið með tilliti til raka og mögulegrar sveppamyndunar. Það má því miður segja að niðurstöðurnar komu okkur dálítið á óvart. Þær voru verri en við héldum,“ sagði Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri rekstrar og klínískrar stoðþjónustu á SAk. HAFA FUNDIÐ FYRIR EINKENNUM Íbúar á svæðinu eru