Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin bæta við sig

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn bæta við sig fylgi milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Maskínu, sem nær til stjórnmálaflokka á landsvísu. Greint var frá niðurstöðum hennar á vef Vísis í kvöld.Samfylkingin mælist með mest fylgi, 27,7%. Næststærstur mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 18,1%.Sjálfstæðisflokkurinn hefur greinilega verið að sækja í sig veðrið og mælist nú með meira fylgi en hann hefur gert í könnunum Maskínu síðan í september í fyrra, en fylgi hans hefur mælst á bilinu 13,5-16,2% síðan í októbermánuði.Til samanburðar hefur fylgi Samfylkingarinnar mælst á bilinu 25,5-29,4% á sama tímabili.Fylgi Miðflokksins tapar tveimur prósentustigum á milli mánaða og mælist 16,4%. Viðreisn tapar einnig fylgi og mælist með 12,8% í stað 14% í mars.Lítil hreyfing er á stuðningi við aðra flokka
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin bæta við sig

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta