Umfangsmikilli lögregluaðgerð við Gránufélagsgötu á Akureyri lauk á öðrum tímanum í nótt og gistir einn fangaklefa að sögn Heimis Heiðarssonar, varðstjóra hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Hann staðfesti fyrr í kvöld að sérsveit ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðinni.Lögregla var með mikinn viðbúnað þegar hæst lét. Samkvæmt ábendingu sem fréttastofu barst voru ekki færri en fjórir lögreglubílar og einn sjúkrabíll á vettvangi. Heimir segir lögreglu ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.Sérsveitarmenn við æfingar.RÚV / Ragnar VisageFréttin var uppfærð og henni breytt með upplýsingum um að aðgerðum væri lokið með handtöku.