Fyrsta skipið með vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, vindorkuver Landsvirkjunar við Sultartanga, kom til Þorlákshafnar í kvöld. Það var flutningaskipið Idunn frá skipafélaginu Torcargo sem sigldi með farminn frá Rotterdam en um borð voru hlutir sem samsvara um einni og hálfri vindmyllu.