Ráðamenn í Englandi vilja setja það í lög að nemendum verði bannað að vera með síma í skólum þar í landi. Jacqui Smith, menntamálaráðherra, sagði á breska þinginu í dag að lögð yrði fram breytingartillaga á skólalögum þar sem forsvarsmönnum skóla yrði skylt að banna síma.