Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

250 milljóna króna listaverk í Vestmannaeyjum

Listaverk Ólafs Elíassonar í Vestmannaeyjum, Sjónarhorn flakkarans, verður afhjúpað í næsta mánuði. Það samanstendur af útsýniskúlu og göngustígum upp Eldfellið og hringinn í kringum gíginn í fellinu.„Hugmyndin er að koma inn í þennan skála og horfa út um gat í miðju kúlunni og horfa á eldfjallið,“ segir Drífa Gunnarsdóttir, sviðstjóri og bæjarritari Vestmannaeyja. Gönguferðin á fellið sé hluti af upplifuninni.Heildarkostnaður við listaverkið og stígagerð er á þriðja hundrað milljónir króna, þar af greiðast ríflega áttatíu milljónir til listamannsins.„Upphaflegur kostnaður var áætlaður 200 milljónir en hann er kannski nær 250 milljónum í dag en framlag Vestmannaeyjabæjar er samt óbreytt, bara 50 milljónir. Þetta er auðvitað samstarfsverkefni Vestmannaeyjabæjar og ríkisins,“ segir Drífa.
250 milljóna króna listaverk í Vestmannaeyjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta