Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Halla Bergþóra tekin við starfi ríkislögreglustjóra

Halla Bergþóra Björnsdóttir tók við starfi ríkislögreglustjóra í dag. Hún tók við embættinu af Kristínu Öldu Jónsdóttur, yfirlögfræðingi embættisins, sem var staðgengill ríkislögreglustjóra.Greint var frá þessu á Facebook-síðu Ríkislögreglustjóra.Halla Bergþóra tekur við embætti ríkislögreglustjóra af Kristínu Öldu.RíkislögreglustjóriÞorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skipaði Höllu Bergþóru í embættið. Í tilkynningu á Ísland.is segir að Halla Bergþóra hafi 19 ára reynslu af stjórnun lögregluembætta.Síðustu 17 ár hefur Halla Bergþóra verið settur eða skipaður lögreglustjóri í þremur embættum, meðal annars hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þá var hún lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu frá 2020 og þar til nú.
Halla Bergþóra tekin við starfi ríkislögreglustjóra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta