51 af 61 sveitarfélagi landsins leggur hámarksútsvar á íbúana, þar af eru tvö á höfuðborgarsvæðinu.Útsvarið er stærsti tekjustofn sveitarfélaganna og á síðasta ári voru tekjur þeirra af tekjum og hagnaði íbúanna samtals um 410 milljarðar króna. Hámarksútsvarsprósenta er 14,97% og lágmarkið er 12,44%. Þetta er skilgreint í sveitarstjórnarlögum og sveitarstjórnir þurfa að ákveða fyrir 1. desember hver prósentan verður árið á eftir.Útsvarið er skrúfað í botn hjá flestum sveitarfélögum landsins, þar af tveimur á höfuðborgarsvæðinu. Lægsta útsvarsprósentan á höfuðborgarsvæðinu er á Seltjarnarnesi. SKATTAPARADÍSIN FLJÓTSDALSHREPPUR Eitt sveitarfélag á Íslandi leggur á lágmarksútsvar, þessi skattaparadís er Fljótsdalshreppur þar sem búa rúmlega hundrað manns.Tvö af þeim sveitarfélögum sem eru