Bandaríski söngvarinn D4vid var í dag ákærður fyrir að hafa banað fjórtán ára gamalli stúlku. Lík stúlkunnar fannst sundurlimað í bifreið söngvarans.Hinn tuttugu og eins árs gamli D4vid, sem heitir réttu nafni David Anthony Burke, var handtekinn í síðustu viku í tengslum við dauða fjórtán ára gamallar stúlku í Los Angeles í Kaliforníuríki.Unglingsstúlkan hét Celeste Rivas Hernandez og hafði hún átt í ástarsambandi við Burke. Hún sást síðast á lífi í lok apríl á síðasta ári og var þá á leið heim til söngvarans.Fimm mánuðum síðar, í september 2025, fannst Hernandez látin í Tesla-bifreið Burke. Lík hennar hafði verið sundurlimað.Burke hafði reynt að farga bílnum en vegna mikillar lyktar sem stafaði frá honum komst lögregla á snoðir um Hernandez.Saksóknarar í Kaliforníuríki hafa nú höfðað mál