Forsætisráðherra segir allt tal um að aðildarviðræður snúist um aðlögun að regluverki Evrópusambandsins þvælu og kallar eftir dæmum um slíka aðlögun frá fyrri aðildarviðræðum.Stjórnarandstaðan hefur undanfarna daga sakað ríkisstjórnina um blekkingar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna. Þær komi ekki til með að snúast um hvað sé í boði heldur aðlögun að Evrópusambandinu. Spratt sú umræða upp eftir fréttaskýringu Morgunblaðsins á fimmtudaginn.Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt áfram með málið á Alþingi í dag. „Stendur forsætisráðherra að fullu við það sjónarmið að segi þjóðin já í ágúst þá hefjist ekkert ferli hér á landi sem lúti að lagalegri, stjórnsýslulegri eða pólitískri aðlögun að Evrópusambandinu? Engin aðlögun?“Kristrún Frostadótti